Einkaþjálfaraskóli í fjarnámi

 
Personaaltreeneri+koolitus.jpeg

Verð: 1.980 Evrur
Allt innifalið í verðinu. Námsgögn, verkleg kennsla, prófagjöld ásamt útskriftarskírteini.


IntensivePT - Einkaþjálfaranám


 

Einkaþjálfaranám. Skráðu þig núna!

Viltu verða einkaþjálfari? Þá ertu á réttum stað. Við höfum gert það eins einfalt og hægt er að taka fyrsta skrefið. Hvernig? Við bjóðum upp á einkaþjálfaranám í fjarnámi. Þú þarft ekki að ferðast fram og til baka til þess að mæta í skólann. Þú getur hlustað á alla fyrirlestra í ró og næði heima hjá þér fyrir framan tölvuna, í símanum eða spjaldtölvunni.
Við vorum fyrst í Svíþjóð til þess að bjóða upp á námið á þennan hátt og í dag erum við langstærst í Svíþjóð til þess að bjóða upp á þetta nám í fjarnámi. Við hjálpum hundruðum einstaklinga að mennta sig og fá starf sem einkaþjálfari á hverju ári.

Auk þess að mennta þig í fögum eins og anatómíu, lífeðlisfræði, næringarfræði, fæðubótarefnum, hreyfifræði, meiðslum, þjálffræði ofl. þá færðu auk þess öll þau verkfæri sem þú þarfnast í verklega hlutanum hjá okkur. Við förum einnig yfir það hvernig sé að vinna fyrir líkamsræktarstöðvar og hvernig það er að vera sjálfstæður atvinnurekandi. Við miðlum okkar reynslu sem við höfum safnað í gegn um árin sem þjálfarar um það hvernig við getum komið okkur upp kúnnahóp. En mikilvægast af öllu er að við kennum þér að vera alltaf einu skrefi á undan öðrum þjálfurum með því að viðhalda og bæta í þekkinguna.

Þú sem nemandi hjá okkur færð fulla aðstoð fyrir, í náminu og eftir nám. Þegar þú ert útskrifaður einkaþjálfari frá okkur færðu aðgang að grúppu þar sem allir útskrifaðir þjálfarar frá okkur fara í. Einnig verða þar inni menntaðir einstaklingar í öðrum fögum, t.d kírópraktorar, sjúkraþjálfarar ofl. Þessi grúppa mun koma að góðum notum ef þú lendir í vandræðum tengt þjálfun, vantar tengslanet eða einfaldlega innblástur frá öðrum. Við verðum þar fyrir þig....

 

Fréttaveita

Útskrifaðir þjálfarar frá okkur:

Nema hundruðum talsins. Vilt þú verða einn af þeim?

 
ptdistans+44.jpg

"Hjá IntensivePT gat ég lært einkaþjálfarann úti á landi og þau buðu upp á mjög fjölbreytta og góa kennslu. Þar sem námið er kennt í fjarnámi og þú færð að ráða hvað þú ert að undirbúa þig lengi fyrir prófið án alls tímastress, þá lærir þú miklu meira sjálfkrafa heldur en ef þú værir að flýta þér að ná skilafresti. Ég mæli með þessu námi fyrir alla, í verklegu helginni er farið yfir allt sem þú þarft að kunna varðandi líkamsbeitingu, “cues” og hvernig best er að hjálpa kúnnanum að ná árangri í jafnvel virkilega erfiðum lyftum eins og snatch. Það eru líka mjög góðir kennarar á bakvið þetta nám sem kunna að koma frá sér öllum þessum upplýsingum þannig að maður nær dýpri skilning á mörgu sem tengist mannslíkamanum og líkamsrækt."
-Sunneva Una Pálsdóttir

"Virkilega flott einkaþjálfunarnám með mjög hæfa kennara og fyrirlesara. Þetta er krefjandi nám sem þarf mikinn aga á námstímanum. Ég get sko mælt með þessu námi."
-Erika Hjäpre, Sportlife

"Fagleg menntun með hæfileikaríkum kennurum.Vel útfært og gott námsefni. Get sko vel mælt með þessu."

-Maria Jakobsen, MIPT

"Ég mæli mikið með þessum einkaþjálfaraskóla! Mikið og krefjandi efni, en mjög skemmtilegt! Flottir kennarar sem komu efninu vel frá sér í fyrirlestrum sem eru þæginlega uppsettir."
-Fanney Lilja Vignisdóttir

"Mæli með þessu námi fyrir alla þá sem vilja verða einkaþjálfarar. Góðir kennarar og vel uppfært námsefni. Gef þessu 100% meðmæli."
-Emma Lundin, PT365

"Virkilega gott einkaþjálfaranám. Vel skipulagt og fræðandi. Efnið vel úthugsað og allir kennararnir frábærir. Frábær meðmæli af minni hálfu." 
-Erik Jernberg, Barbell Club Bergslagen

"Frábærir fyrirlesarar með áhugaverða og gefandi fyrirlestra"
-Veronica Holm, Prema Yoga

"'Ákaflega áhugavert og skemmtilegt nám þar sem maður þarf að hafa fullan fókus allan tímann á námsefninu. 5 af 5 mögulegum fyrir alla kennarana, bæði í bóklega og verklega hlutanum. Mæli með!"
-Pernilla Nord, Träna Med Mig

 

Hvers vegna velja svona margir námið okkar?

LESTU MEIRA HÉR!

 
background 2.jpeg