Nýr hópur hefur nám hjá IntensivePT

Nýr hópur byrjar nám hjá IntensivePT

Þá er komið að því að hópur númer 3 byrji námið sitt hjá einkaþjálfaraskólanum IntensivePT á Íslandi. Námið byrjar 8. júní og hefst með fyrirlestrum á netinu sem standa yfir í tvær vikur. Þar geta nemendur fylgst með og hlustað á kennarana fara yfir efnið ásamt því að geta spurt spurninga út í námsefnið. Fyrirlestrarnir verða allir teknir upp og því geta nemendur horft og hlustað eins mikið og oft á þá og þörf er á til þess að læra námsefnið.

Að loknum fyrirlestrunum bíður nemenda viðamikið próf sem getur tekið allt að 2 vikur að klára. Nemendurnir stjórna hraðanum alfarið sjálfir, bæði hvenær þeir ákveða að taka prófið og á hvaða hraða þeir gera það.

Til þess að útskrifast úr náminu þurfa allir að ljúka verklegum hluta námsins. Þar er farið yfir þá verklegu þætti sem nemendur þurfa að kunna til þess að fóta sig á vinnumarkaðinum. Verklega helgin er tekin á tveim dögum og pössum við upp á það að þetta sé bæði fræðandi og skemmtilegt. Næsta verklega helgi fer fram dagana 20. - 21. júní í Reykjavík.

Næsta nám byrjar 10. ágúst og er skráning hafin á heimasíðu IntensivePT

https://www.intensivept.is

unnamed.jpg
Guest User